Verkefni okkar eru fyrst og fremst þjónusta við innréttingamarkaðinn, innihurðaframleiðsla og hverskyns sérsmíði innanhúss hvort heldur sem er fyrir heimili, fyrirtæki eða stofnanir.
GKS Innréttingar byggir á gömlum og traustum grunni. Fyrirtækið í núverandi mynd er tilkomið með samruna nokkurra fyrirtækja:
Í dag vinna hjá fyrirtækinu starfsmenn sem áður höfðu starfað hjá þessum fyrirtækjum. Hér er því mikil reynsla samankomin hjá góðu starfsfólki. Starfsmannafjöldi er að jafnaði um 25-30 manns.
GKS Innréttingar er framleiðslufyrirtæki af fullkomnustu gerð sem býr yfir tölvustýrðum fjölvinnsluvélum, fræsurum, tölvustýrðum sögum og borvélum, allt til að geta boðið bestu nákvæmni í framleiðslu og samkeppnishæf verð. Auk þessa hefur fyrirtækið umboð fyrir hágæða innréttingar frá þýska framleiðandanum Nobilia, hljóðvistarkerfi og glerveggjakerfi svo dæmi séu tekin.
Verkefni okkar eru fyrst og fremst þjónusta við innréttingamarkaðinn, innihurðaframleiðsla, framleiðsla og sala skrifstofuhúsgagna og hverskyns sérsmíði innanhúss hvort heldur sem er fyrir heimili, fyrirtæki eða stofnanir.
Hjá okkur getur þú fundið lausnir sem mæta öllum kröfum
Við erum sérfræðingar í að bjóða upp á hágæða lausnir fyrir fagaðila í byggingariðnaði. Við bjóðum sérsniðnar og sérsmíðaðar lausnir sem taka mið af þörfum hvers og eins, hvort sem það eru arkitektar, verktakar eða aðrir fagaðilar. Markmið okkar er að veita áreiðanlega, endingargóða og vandaða þjónustu, sem skilar árangri í hverju verkefni. Við vinnum með fjölmörgum fagaðilum og bjóðum upp á vörur og lausnir sem uppfylla strangar kröfur um gæði, virkni og hönnun. Á þessari síðu getur þú skoðað hvernig við þjónustum arkitekta, verktaka, veitum ráðgjöf í þjónustu og kynnum verkefnin sem við höfum unnið í gegnum tíðina.
Við höfum áralanga reynslu í innréttingum fyrir nýbyggingar jafnt sem eldri hús. Ekki hika við að líta við í sýningarsal okkar í Síðumúla 4 eða ýta á „BÓKA TÍMA“ hnappinn efst í hægra horninu.
Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almenna verkferla hjá okkur þegar stefnt er að slíkum framkvæmdum.
Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd, hæð og dýpt veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.
Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggðir á upplýsingum frá þér.
Við skoðum með þér teikningarnar og lögum þær að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.
Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálf/ur eða færð sent heim að dyrum.
Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.
Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á „BÓKA FUND“ hnappinn efst á síðunni.
Hraðþjónusta á einföldum innréttingum (í hvítu) tekur 3-4 vikur.