Við sérhæfum okkur í fjölbreyttu úrvali af innihurðum og glerveggjum, hannað með bæði stíl og virkni í huga. Hvort sem þú ert að leita að sérsmíðuðum innihurðum, hljóðeinangrandi hurðum eða lausnum eins og rennihurðum, innihurðum með gleri eða glerveggjum, þá erum við með réttu lausnina fyrir þig.
Allar innihurðir eru sérsmíðaðar eftir málum og þörfum hvers og eins.
Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almenna verkferla hjá okkur þegar stefnt er að slíkum framkvæmdum.
Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd, hæð og dýpt veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.
Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggðir á upplýsingum frá þér.
Við skoðum með þér teikningarnar og lögum þær að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.
Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálf/ur eða færð sent heim að dyrum.
Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.
Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á „BÓKA FUND“ hnappinn efst á síðunni.
Hraðþjónusta á einföldum innréttingum (í hvítu) tekur 3-4 vikur.