GKS

Fagaðilar

Við viljum vinna með þér

Hjá okkur getur þú fundið lausnir sem mæta öllum kröfum

Við erum sérfræðingar í að bjóða upp á hágæða lausnir fyrir fagaðila í byggingariðnaði. Við bjóðum sérsniðnar og sérsmíðaðar lausnir sem taka mið af þörfum hvers og eins, hvort sem það eru arkitektar, verktakar eða aðrir fagaðilar. Markmið okkar er að veita áreiðanlega, endingargóða og vandaða þjónustu, sem skilar árangri í hverju verkefni. Við vinnum með fjölmörgum fagaðilum og bjóðum upp á vörur og lausnir sem uppfylla strangar kröfur um gæði, virkni og hönnun. Á þessari síðu getur þú skoðað hvernig við þjónustum arkitekta, verktaka, veitum ráðgjöf í þjónustu og kynnum verkefnin sem við höfum unnið í gegnum tíðina.

Verkefni

Dæmi um þau verkefni sem við höfum unnið með viðskiptavinum okkar til að útbúa fallegar og fúnkerandi íbúðir

Skoða

Þjónusta

Við erum hér til að styðja við ykkur frá upphafi til enda.

Skoða

Verktakar

Við leggjum áherslu á faglega ráðgjöf, öfluga þjónustu og náið samstarf við flókin byggingarverkefni því við vitum að traust samstarf skiptir öllu máli á verkstað.

Skoða

Arkitektar

Starfsmenn GKS Innréttinga leggja sig fram við að bjóða upp á trausta og góða þjónustu við arkitekta sem vilja sameina hágæða hönnun, frábæra virkni og endingu í sínum verkefnum.

Skoða

Vefverslun

Skrefin að nýrri innréttingu

Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almenna verkferla hjá okkur þegar stefnt er að slíkum framkvæmdum.

01Máltaka

Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd, hæð og dýpt veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.

02Bóka fund

Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggðir á upplýsingum frá þér.

03Förum yfir málin

Við skoðum með þér teikningarnar og lögum þær að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.

04Sækir eða færð sent

Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálf/ur eða færð sent heim að dyrum.

05Við erum til að í græja allt

Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.

Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á „BÓKA FUND“ hnappinn efst á síðunni.

Hraðþjónusta á einföldum innréttingum (í hvítu) tekur 3-4 vikur.

© 1993 - 2025, Gamla Kompaníið