GKS

Verktakar

Við leggjum áherslu á faglega ráðgjöf, öfluga þjónustu og náið samstarf við flókin byggingarverkefni því við vitum að traust samstarf skiptir öllu máli á verkstað.

GKS býður verktökum fyrsta flokks byggingarlausnir sem standast kröfur nútímans. Við sérhæfum okkur í vönduðum, endingargóðum og hagkvæmum vörum sem henta í fjölbreytt byggingaverkefni – hvort sem unnið er að nýbyggingum, endurbótum íbúða eða stórum atvinnuhúsnæðum. Við eigum náið samstarf við fjölmarga byggingaverktaka og innréttum hundruðir íbúða í nýbyggingum á hverju ári.

Við bjóðum:

 

Þarfir verktaka eru í forgrunni hjá GKS Innréttingum. Við finnum lausnir sem standast væntingar ykkar um hagkvæmni, endingu og hönnun.

Lausnamiðað samstarf sem einfaldar þína vinnu.

Við aðstoðum verktaka við að velja réttu lausnirnar fyrir hvert verkefni – allt frá hljóðeinangrandi veggjalokunum yfir í endingargóð gólfefni fyrir fjölbýlishús og atvinnuhúsnæði.

Vefverslun

Skrefin að nýrri innréttingu

Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almenna verkferla hjá okkur þegar stefnt er að slíkum framkvæmdum.

01Máltaka

Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd, hæð og dýpt veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.

02Bóka fund

Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggðir á upplýsingum frá þér.

03Förum yfir málin

Við skoðum með þér teikningarnar og lögum þær að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.

04Sækir eða færð sent

Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálf/ur eða færð sent heim að dyrum.

05Við erum til að í græja allt

Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.

Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á „BÓKA FUND“ hnappinn efst á síðunni.

Hraðþjónusta á einföldum innréttingum (í hvítu) tekur 3-4 vikur.

© 1993 - 2025, Gamla Kompaníið