Við bjóðum gæða innréttingar í þvottahúsið fyrir aukin þægindi. Við sérsníðum innréttingar fyrir þvottavélar og þurrkara, veggskápa og skipulagslausnir sem passa við þitt þvottahús.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval innréttinga í þvottahúsið, bæði sérsniðnar og tilbúnar lausnir, sem nýta plássið sem best. Veldu úr skápum, skúffulausnum fyrir aukna geymslu og vinnupláss sem nýta rýmið á sem bestan hátt. Með lausnum í mismunandi verðflokkum finnur þú hjá okkur réttu innréttinguna fyrir þitt þvottahús.
Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almenna verkferla hjá okkur þegar stefnt er að slíkum framkvæmdum.
Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd, hæð og dýpt veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.
Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggðir á upplýsingum frá þér.
Við skoðum með þér teikningarnar og lögum þær að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.
Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálf/ur eða færð sent heim að dyrum.
Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.
Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á „BÓKA FUND“ hnappinn efst á síðunni.
Hraðþjónusta á einföldum innréttingum (í hvítu) tekur 3-4 vikur.