Upplýsingar
BORA Horizon er glæsilegt og nútímalegt hengiljós sem sameinar hágæða hönnun, sérstillanlega lýsingu og snjalla notkun. Ljósið svífur lárétt yfir eldhúsborðið eða eyjuna og bætir bæði birtu og yfirbragði við rýmið.
Horizon veitir bæði beina og óbeina lýsingu og býður upp á fimm mismunandi litahitastillingar – frá hlýju ljósi yfir í kaldara og skarpara birtustig. Ljósið er dimmanlegt og hægt að stýra því með handahreyfingum: kveikt, slökkt, stillt birtustig eða breytt litahita – allt án þess að snerta neitt.
Ljósið er úr hágæða efnum og hentar fullkomlega inn í eldhús sem leggja áherslu á hreina hönnun og smekklega stemningu. Ljósið er fáanlegt í moss green, rose gold og black.
Ljósastæðan er 126 × 1,4 × 3,5 cm, gerð úr málmi og plasti, með LED lýsingu sem stillist í litahitastigi frá 2700 til 5000 K.
Ljósið er með föstum hæðarstillingum sem eru stilltar með stöðukúlum á festingunni í loftinu.
Þessi vara er ekki lagervara, hana þarf alltaf að sérpanta.
Afhendingartími BORA eru að meðaltali 4-6 vikur frá pöntun!