GKS

MuteBox work creative pro

2.490.133 kr.2.785.381 kr.

MuteBox Work Creative er fullkominn vinnuklefi fyrir einbeitta og skapandi vinnu án truflana. Með vandaðri hljóðeinangrun, stillanlegu skrifborði og nútímalegri hönnun býður hann upp á þægilegt og fagurt vinnurými innan hvers kyns skrifstofuumhverfis.

SKU: N/A Flokkur: Tag:

Upplýsingar

MuteBox Work Creative er hljóðeinangraður vinnuklefi sem sameinar nútímalega hönnun, góða hljóðvist og þægindi fyrir einbeitta vinnu. Klefinn er sérhannaður fyrir opin vinnurými þar sem ró, athygli og sköpun eru í fyrirrúmi.

Klefinn dregur úr utanaðkomandi hávaða og er búinn rafdrifnu, hæðarstillanlegu skrifborði sem gerir vinnuna sveigjanlega og þægilega. Hann er glæsilega hannaður með innbyggðri LED lýsingu og sjálfvirkri loftræstingu með hreyfiskynjara, sem tryggir ferskt og bjart vinnuumhverfi allan daginn. Á bakhlið klefans er glær glertafla sem hentar vel fyrir hugmyndavinnu og skissur, og hljóðdempandi viðarpanelar úr endurunnu efni skapa hlýlegt og vistvænt andrúmsloft.

Stærð klefans er 204,6 cm á breidd, 223 cm á hæð og 130,5 cm á dýpt.

ATH! Mutebox er sérpöntun.
Afhendingartími eru 4-6 vikur. Starfsmenn GKS Innréttinga hafa samband eftir að pöntun hefur verið staðfest og sendir tilboð í uppsetningu í kjölfarið.

Additional information

Litir

Hvítt, Svart, Svart – Eik, Svart – Svart

© 1993 - 2025, Gamla Kompaníið