GKS Innréttingar ehf varð til árið 1993 þegar þrjú fyrirtæki sameinuðu krafta sína. Öll þrjú fyrirtækin áttu sér langa og merkilega sögu sem rekja má allt til ársins 1908 þegar Gamla Kompaníið var stofnað. Markmiðið var að nýta styrkleika allra fyrirtækjanna undir einu vörumerki. Árið 1999 tók Arnar Aðalgeirsson við sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og hefur leitt það síðan, með öflugum hópi samstarfsfólks, með góðum árangri. Viðskiptavinurinn hefur ætíð verið í forgrunni hjá GKS og rík áhersla lögð á að starfsmenn fyrirtækisins veiti framúrskarandi þjónustu og sveigjanleika í öllum viðskiptum.

Árið 2015 gerði GKS samning við þýska gæðaframleiðandann Nobilia og varð opinber umboðsaðili þeirra á Íslandi, sem hefur reynst fyrirtækinu afar vel.  Verksmiðjur Nobilia eru þær fullkomnustu í heimi, fyrirtækið framsækið og í forystu á innréttingamarkaði í Evrópu.

Í dag finnur þú fjölbreyttar lausnir hjá GKS – Innréttingum. Fyrirtækið er með eigin framleiðslu á einu stærsta og fullkomnasta trésmíðaverkstæði landsins, ásamt innflutningi á hagstæðum gæðavörum frá viðurkenndum birgjum á byggingamarkaði s.s. Nobilia, Leicht, Westag, Patentverwag, Bora, Lafuco og fl. Við bjóðum heildarlausnir fyrir heimili, skrifstofur, hótel og stofnanir, ásamt því að innrétta hundruðir íbúða í nýbyggingum á ári hverju.

Markmið GKS – Innréttinga er að viðskiptavinurinn sé í öndvegi og gildin okkar eru Gæði – Kunnátta -Sveigjanleiki.