Umhverfismál
Sjálfbærni GKS Innréttinga
Hjá GKS Innréttingum er lögð áhersla á sjálfbærni og ábyrgð í allri hönnun og framleiðslu. Við leggjum metnað í að bjóða upp á vandaðar og endingargóðar innréttingar sem standast kröfur nútímans um umhverfisábyrgar lausnir. Þetta er ein af fjölmörgum ástæðum þess að við höfum valið birgja sem falla að þessari stefnu.
Vörur frá GKS uppfylla ströng umhverfisviðmið og margar þeirra bera viðurkenndar vottanir eins og Svansvottun og Blauer Engel. Þessar vottanir staðfesta að varan sé framleidd með skýrum
umhverfissjónarmiðum og ábyrgri efnisnotkun. Umhverfisvitund er fyrir okkur sjálfsagður hluti af góðri vöruhönnun og ábyrgri starfsemi.
Við hjá GKS Innréttingum leggjum metnað okkar í að bjóða upp á innréttingar sem standast ekki aðeins kröfur um hönnun og gæði, heldur einnig umhverfislega ábyrgð. Sem stoltir samstarfsaðilar Nobilia, leiðandi framleiðanda eldhúsinnréttinga í Evrópu, deilum við þeirri sýn að sjálfbærni sé lykilþáttur í allri hönnun og framleiðslu.
Umhverfisvænir birgjar
Við val á birgjum er ríkur þáttur í ákvörðunartöku umhverfismál. Vörur sem við bjóðum upp á falla undir umhverfisstefnu GKS Innréttinga og nokkrir af okkar byrgjum eru Nobilia, Leicht, Lafuco, Westag, Patenterwag, Bora, Mutebox, Dunavox & Elon. Öll hafa þau hlotið margar vottanir sem staðfestir skuldbindingu þeirra til sjálfbærni og samfélagsábyrgðar.
Ending og gæði
Innréttingar okkar eru hannaðar til að endast og standast daglega notkun. Með því að einblína á gæði og endingartíma stuðlum við að minni þörf fyrir endurnýjun og drögum þannig úr umhverfisáhrifum.
Kíktu til okkar í Síðumúla 4 og skoðaðu úrvalið okkar!